Skoðuðu býflugnabú og prufuðu tómatarétti
Eins og fram áður hefur komið fram er stjörnuparið Kim Kardashian og Kanye West á landinu ásamt Koutney, systur Kim og fjölskylduvininum Jonathan Cheban.
Jonathan birti í gær á Snapchat-reikningi sínum myndbönd og myndir frá gærdeginum. Þar má sjá þau skoða garðyrkjustöð á Suðurlandi, þar sem allt er borið fram með tómötum. Þá má einnig sjá þau heimsækja býflugnabú á Suðurlandi.
Enn fremur má sjá þau heimsækja Gullfoss og Geysi, þar sem þau biðu í offvæni eftir að sjá hverinn gjósa.
Sjá nánar: Fjöldi fólks beið í ofvæni eftir Kim og Kanye í miðbænum
Í lok kvöldsins má sjá þau snæða saman á veitingastaðnum Grillmarkaðnum í Austurstæti. Þar sést matgæðingurinn og fjölskylduvinurinn, Jonathan Cheban, snæða hrossakjöt í fyrsta skipti. Gera má ráð fyrir að veislan á Grillmarkaðnum hafi verið afmælisveisla fyrir Kourtney. Hún á afmæli í dag, 18. apríl. Einnig má heyra afmælissöng sunginn í bakgrunni.
Hér má sjá myndband:
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=ESpgJCZfmNM?rel=0&w=640&h=480]
Kim birti mynd af Gullfossi á Instagram.
//platform.instagram.com/en_US/embeds.js
Kourtney hefur einnig birt nokkrar myndir af sér frá Íslandi.
//platform.instagram.com/en_US/embeds.js
//platform.instagram.com/en_US/embeds.js
//platform.instagram.com/en_US/embeds.js
Einnig birti Kourtney færslu á Twitter þess efnis að „elska“ þegar hún geti séð tunglið og sólina á sama tíma.
I love when you can see the moon and the sun at the same time. ?☀️
— Kourtney Kardashian (@kourtneykardash) April 17, 2016