Egat.is, Langholtsvegi 168
Egat.is, verslun og heildsala að Langholtsvegi 168, Reykjavík, býður upp á afar fallega infrarauða saunaklefa á mjög hagstæðu verði. Saunaklefarnir eru afar einfaldir í uppsetningu, fyrirferðarlitlir og svo smekklegir í útliti að þeir eru hreinasta híbýlaprýði. Emf-gildi infrarauðu geislanna sem hita upp klefana er auk þess svo lágt (EMF-0.1-07 mG) að þeir valda ekki rafsegulsmengun. Þá eru þeir snyrtilegir og valda engum óþrifnaði.
Eigandi Egat.is er Eiríkur Sverrisson. Auk saunabaðklefana má segja að hann reki sérverslun fyrir nuddara enda starfar hann sjálfur í faginu og nuddar hjá Crossfit Reykjavík. Eiríkur hefur starfað sem nuddari í 25 ár og veit því vel hvaða tól og tæki góðir nuddarar þurfa í sínu starfi. Meðal annars selur Egat.is hefðbundna nuddbekki, ferðanuddbekki, rafmagnsnuddbekki og nuddvörur ýmiss konar.
Nuddbekkirnir eru af vönduðustu gerð og eru með fimm ára ábyrgð. Auk þess selur Egat.is nuddsteina og steinapotta. Steinarnir geymast í þar til gerðum handhægum potti og eru síðan bornir á hörund eða þeim nuddað á
líkamann til mikillar heilsubótar.
Fjölmargar aðrar nuddvörur eru í boði sem gaman er að kynna sér á heimasíðu og Facebook-síðu fyrirtækisins. Má þar nefna ferðanuddstóla, snyrtibekki, nuddbelti, nuddolíu, nuddlök og hitateppi, óléttupúða, hnakkastóla og margt fleira.
Verslunin að Langholtsvegi 168 er opin eftir samkomulagi. Síminn er 862-6194 og netfang er eirikursv@simnet.is