fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
FókusKynning

Hjá Dóra: Heimilislegur matur á góðu verði

Kynning

Allir réttir eldaðir á staðnum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 1. mars 2016 11:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Þórhallsson matreiðslumaður hefur um árabil verið eitt af kennileitum Mjóddarinnar í Breiðholti þar sem hann hefur síðan 1996 rekið hina vinsælu matsölu Hjá Dóra. Hann gengur jafnan undir nafninu Dóri og er mönnum í hverfinu að góðu kunnur og jafnvel þótt út fyrir hverfið væri leitað!

„Hjá okkur ríkir notalegt andrúmsloft með allt að því heimilislegum blæ. Matsalan nýtur mikilla og stöðugra vinsælda enda vinn ég eingöngu með gott hráefni og legg áherslu á bragðgóðan mat fyrir hagstætt verð, en selt er eftir vigt og meðalverð á máltíð um 900–1.450 krónur,“ segir Dóri.

„Þótt hér í hádeginu verði oft myndarleg röð svangra viðskiptavina í þá gengur þjónustan hratt og vel fyrir sig. Því hikar fólk ekki við að bíða smá stund þar sem það veit sem er; að maturinn er gómsætur og það bregst aldrei. Ég er líka með einvala starfslið sem hefur verið lengi hjá mér,“ upplýsir Dóri glaður í bragði.

Hamborgarhryggur og snitsel með tilheyrandi á föstudögum

Veitingamaðurinn bendir á að viðskiptavinirnir geti ávallt gengið að sex réttum vísum. „Hér er á hverjum degi djúpsteikt ýsa, kjúklingur, kjötbollur, steikt lambalæri, svínahryggur með pöru og rifjasteik með pöru. Við erum líka alltaf með tvo aðra rétti, sem eru mismunandi eftir dögum, t.d. lasanja, svínasnitsel og fiskibollur. Á föstudögum er ég oftast með hamborgarhrygg og snitsel með tilheyrandi,“ segir hann.

Allir réttir eldaðir á staðnum

„Allur matur er eldaður hér á staðnum. Í salnum eru sæti fyrir 35 manns og er margsetið við þau í hádeginu. Vinnuhópar og iðnaðarmenn borða hér í stórum stíl og einnig fólk úr fyrirtækjunum í kring auk þess sem ýmsir sem eiga erindi í Mjóddina koma við hjá okkur og fá sér gjarnan í svanginn. Þetta breytist aðeins þegar líður á daginn en á þeim tíma kemur fólk oft við og kaupir mat til þess að hafa með sér heim. Það er einmitt mikið um það á föstudögum þegar fólk er lúið eftir vinnuvikuna – þá finnst því gott að koma við hjá mér og kaupa tilbúinn, bragðgóðan rétt til að taka með sér heim, henda síðan bakkanum og byrja helgina.“
Dóri segir að algengt sé að eldri borgarar kaupi mat hjá honum og einnig þeir sem búa einir. „Fólk sér hagkvæmnina og tilbreytinguna í því að kaupa heitan, tilbúinn mat. Auk þess sem það sparar mörgum bæði fyrirhöfn og tíma,“ segir veitingamaðurinn vinsæli.

Hjá Dóra – Þönglabakki 1 – Mjóddinni. Opnunartími er virka daga 11.30–13.30 og svo seinnipartinn frá 17.00–19.00

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“