ALLAR hugsanlegar tegundir af hágæða gluggum og hurðum á samkeppnishæfu verði
Gluggavinir hófu starfsemi árið 2011. Markmið fyrirtækisins er að bjóða upp á ALLAR hugsanlegar tegundir af hágæða gluggum og hurðum á samkeppnishæfu verði. Að sögn Gísla Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra Gluggavina, er einungis um gæðaefni að ræða þegar kemur að vinnu fyrirtækisins.
„Við erum meðal annars með ál-/tréglugga, og hurðir sem eru trégluggar og hurðir með álkápu að utanverðu. Þeir eru þar af leiðandi viðhaldsfríir að utan sem hentar mörgum mjög vel. Við erum líka með hefðbundna tréglugga og hurðir smíðað eftir máli,“ segir hann.
„Gluggarnir eru 120 mm breiðir og líkja að öllu leyti eftir hefðbundnum trégluggum. Opnanleg fög falla alveg inn með póstum og þeir hafa marga opnunarmöguleika. Þessi gluggagerð er með góðri hita- og hljóðeinangrun auk þess sem hún er með barnalæsingum. Við framleiðum glugga eftir óskum og hugmyndum viðskiptavina og framleiðum eftir máli. Hurðir eru framleiddar eftir óskum og hugmyndum viðskiptavina. PVC gluggar og hurðir þarfnast ekki viðhalds.
Gluggavinir leggja metnað sinn í að bjóða framúrskarandi þjónustu,“ segir Gísli.
Afhendingartími er fjórar til sjö vikur.
Gluggavinir
Hlíðasmára 11
201 Kópavogur
Sími: 571-0888
Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10.00 til 17.00.
Föstudaga frá kl.10.00 til 16.00.