fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
433

Góðæri í íslenskum fótbolta

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. janúar 2018 11:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það ríkir góðæri í íslenskum fótbolta og launin hafa hækkað gríðarlega á síðustu árum. Leikmenn eru farnir að koma heim á besta aldri í stað að þess að vera úti í atvinnumennsku þrátt fyrir að hafa tækifæri til þess. Þeir sem leikið hafa í miðlungsgóðum liðum á Norðurlöndunum hafa það í flestum tilvikum betra í stærstu liðum Íslands þar sem laun og önnur hlunnindi eru mikil.

Sjö atvinnumenn hafa snúið heim í vetur í Pepsi-deild karla og einn öflugasti leikmaðurinn í íslenskri kvennaknattspyrnu ákvað að koma heim. Ekki er útilokað að fleiri bætist í hópinn áður en boltinn fer að rúlla. Sá tími er liðinn þegar leikmenn reyna að halda sér úti eins lengi og hægt er og koma síðan heim. Launin eru slík að það hefur verið óþarfi að strita úti í hinum stóra heimi. Ekki er óalgengt að leikmenn í þessum gæðaflokki séu með meira en eina milljón króna í laun þegar peningar og hlunnindi eru tekin saman. Bestu lið landsins hafa marga í þeim launaflokki í sínum röðum.

Mörg stór nöfn hafa komið heim en ekkert er þó stærra en Birkir Már Sævarsson sem er fastamaður í íslenska landsliðinu. Birkir á öruggt sæti í byrjunarliði Íslands en kaus samt sem áður að koma heim, það verður því leikmaður í Pepsi-deildinni á heimsmeistaramótinu í Rússlandi næsta sumar.

Birkir Már Sævarsson – Var í Hammarby
Aldur – 33 ára
Staða – Hægri bakvörður
Líklega stærsta nafið sem er komið heim og í raun ótrúlegt að hann hafi komið heim. Birkir hefur átt fast sæti í íslenska landsliðinu og er algjör lykilmaður þar. Hann hefur verið að spila sín bestu ár á ferlinum en ákveður að snúa heim, það er mögnuð staðreynd að leikmaður Vals muni verða í byrjunarliði Íslands á HM næsta sumar. Hægri bakvörður Vals mun berjast við Lionel Messi, einn besta knattspyrnumann sögunnar.

Kristinn Freyr Sigurðsson – Var í GIF Sundsvall
Aldur – 26 ára
Staða – Miðjumaður
Þessi öflugi miðjumaður ákvað að snúa aftur heim eftir eitt ár í atvinnumennsku. FH og Valur háðu afar harða baráttu um hann sem varð til þess að hann gat farið fram á góð laun. Kristinn var besti leikmaður Pepsi-deildarinnar áður en hann hélt út í atvinnumennsku og styrkir Val mikið. Hann er að koma heim á besta aldri og ætti að verða stjarna í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð.

Hjörtur Logi Valgarðsson – Var í Örebro
Aldur – 29 ára
Staða – Vinstri bakvörður
Eftir sex ár í atvinnumennsku ákvað Hjörtur Logi að snúa heim og samdi við uppeldisfélag sitt, FH. Hjörtur á að baki tíu A-landsleiki og kemur heim á góðum aldri. Atvinnumennskan hefur ekki alltaf verið dans á rósum fyrir Hjört en hann kemur til með að styrkja FH gríðarlega.

Kristinn Steindórsson – Var í GIF Sundsvall
Aldur – 27 ára
Staða – Sóknarmaður
Á besta aldri ákveður Kristinn að koma heim, en hann var einn af þeim sem voru í miðlungsliði á Norðurlöndunum. Það er ljóst að hann hefur það jafn gott hér á Íslandi ef ekki betra en hann hafði það launalega séð í Svíþjóð. Kristinn vildi ekki fara í uppeldisfélag sitt, Breiðablik, og samdi við FH.

Guðmundur Kristjánsson – Var í Start
Aldur – 28 ára
Staða – Miðjumaður
Guðmundur kemur heim og semur við FH eftir að hafa verið í sex ár í atvinnumennsku. Þessi öflugi miðjumaður hafnaði uppeldisfélagi sínu, Breiðabliki, og valdi að fara í risann í Hafnarfirði. Þrátt fyrir að hafa getað verið áfram úti kaus Guðmundur að flytja heim með fjölskyldu sinni. Mikill styrkur fyrir FH-inga að krækja í hann.

Sölvi Geir Ottesen – Var í Guangzhou R&F 
Aldur – 33 ára
Staða – Miðvörður
Eftir rúm 13 ár í atvinnumennsku kemur þessi öflugi miðvörður heim. Hann fær rausnarlega borgað frá uppeldisfélagi sínu, Víkingi, sem hann samdi við fyrir jól. Sölvi hefur leikið á Norðurlöndunum, í Kína, Rússlandi og á fleiri stöðum. Hann kemur heim með mikla reynslu og verða gerðar miklar kröfur til hans í Víkinni.

Hallgrímur Jónasson – Var í Lyngby
Aldur – 31 árs
Staða – Miðvörður
Hefur verið í atvinnumennsku frá árinu 2009 og gert það gott. Hann hélt til á Norðurlöndunum og gerði vel. Fjölskyldan ákvað að flytja til Akureyrar og Hallgrímur kom í kjölfarið. Hann var eftirsóttur biti en kaus að fara heim á Norðurlandið. Hann mun spila í hjarta varnarinnar með Guðmanni Þórissyni og eiga þeir að geta búið til eina öflugustu vörn landsins.

Hallbera Guðný Gísladóttir – Var í Djurgårdens IF 
Aldur – 31 árs
Staða – Vinstri bakvörður
Einn besta knattspyrnukona Íslands ákvað að koma heim og semja við Val. Hallbera er algjör lykilmaður í kvennalandsliðinu og hefði vel getað haldið áfram í atvinnumennsku, en hugurinn leitaði hins vegar heim. Þeir sem vel þekkja til segja að Hallbera sé með launahæstu leikmönnum í sögu íslenska kvennafótboltans. Mikill styrkur fyrir Val og Pepsi-deildina að fá hana heima.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vieira hættur en gæti nú boðist ansi spennandi starf

Vieira hættur en gæti nú boðist ansi spennandi starf
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Jökull á heimleið

Jökull á heimleið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Upp úr sauð í Breiðholti: Viðstaddir fullyrða að Baldvin segi ekki alla söguna – „Framkoma hans var til skammar“

Upp úr sauð í Breiðholti: Viðstaddir fullyrða að Baldvin segi ekki alla söguna – „Framkoma hans var til skammar“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vill taka við enska landsliðinu

Vill taka við enska landsliðinu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Falk segir að Trent sé opinn fyrir brottför

Falk segir að Trent sé opinn fyrir brottför
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Víkingar mæta albönsku meisturunum

Víkingar mæta albönsku meisturunum