fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
FókusKynning

Góðar ástæður fyrir því að hætta á Facebook

Facebook gæti verið að hafa slæm áhrif á líf þitt – Kannast þú við eitthvað á listanum?

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 15. mars 2016 22:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir kannast eflaust við að hafa eytt allt of mörgum klukkutímum á samfélagsmiðlum, þá sérstaklega Facebook. En þetta hangs á samfélagsmiðlum er ekki sérstaklega hollt fyrir okkur, hvorki líkamlega né andlega. Þörfin fyrir að kíkja sí og æ á Facebook getur til dæmis truflað svefn, valdið öfund í garð vina og dregið úr athygli þinni á umhverfið í kringum þig. Hér eru nokkrar ástæður fyrir því af hverju það gæti verið skynsamlegt að taka sér reglulega frí frá samfélagsmiðlum, eða reyna að losa sig út úr þeim vítahring að vera stanslaust að kíkja á Facebook í símanum.

Raskar svefni

Mikil notkun samfélagsmiðla getur haft slæm áhrif á svefnmynstur fólks og stuðlað að andvökunóttum. Þá eru töluverðar líkur á að fólk kíki á Facebook þegar það er andvaka. Þarna getur skapast vítahringur sem veldur miklu svefnleysi og vanlíðan.

Skapar öfund

Fólk sem eyðir miklum tíma á Facebook getur fundið fyrir öfund í garð vina sinna vegna viðburða sem þeir taka þátt í og lífsstílsins sem þeir lifa, sem kann að virðast fullkominn í gegnum samfélagsmiðla. Þessi öfund getur jafnvel þróast yfir í depurð og þunglyndi. En það er mikilvægt að hafa í huga að flestir sýna yfirleitt bara sínar bestu hliðar á Facebook og deila gleðiefni. Líf annarra er því ekki endilega miklu betra en þitt, þó að það líti út fyrir það að Facebook.

Rafhlöðusóun

Smáforritið Facebook tæmir rafhlöðuna í símanum mjög hratt og veldur því að hann verður rafmagnslaus mun fyrr en ella. Margir kannast eflaust við að rafhlaðan í símanum dugi ekki út daginn, en þá gæti verið góð hugmynd að eyða Facebook-forritinu einfaldlega út.
Ef marka má rannsóknir þá er smám saman að draga úr hæfni fólks til að halda einbeitingu í lengri tíma. Þessu veldur stöðugt utanaðkomandi áreiti sem fylgir stafrænum lífsstíl okkar og gæti verið að breyta efnafræðilegri samsetningu heilans.

Slæm áhrif á sambönd

Samfélagsmiðlar geta vissulega auðveldað okkur að vera í sambandi við ættingja og vini í útlöndum, en þeir geta hins vegar haft slæm áhrif á sambönd para eða hjóna. Þegar fólk er stöðugt að kíkja á Facebook getur það eyðilagt nánar stundir og líkurnar á að detta í spjall við gamla elskhuga eykst til muna. Lengi lifir í gömlum glæðum og allt það.

Dregur úr samskiptum í eigin persónu

Samhliða því að við notum samfélagsmiðla meira í samskiptum, þá dregur úr beinum samskiptum. Þá er gott að minna sig á að Facebook-vinum þínum er flestum alveg slétt sama um þig. Þó að þeim líki við myndirnar þínar og færslurnar, þá er ekki þar með sagt að þeir komi til með að vera vinir í raun þegar þú þarf á því að halda. Ræktaðu frekar tengslin við raunverulega vini þína með því að hitta þá og spjalla, eða hringdu í þá.

Aukin vanlíðan

Rannsóknir hafa sýnt fram á að því meiri tíma sem þú eyðir á Facebook því verr líður þér. Ástæðan er aðallega sú að fólki þykir tímasóun að hanga á Facebook, en gerir það engu að síður. Svo virðist sem fólki þyki það meiri tímasóun og tilgangslausara að hanga á Facebook en vafra um aðra heima internetsins. Fólki líður auðvitað ekki alltaf illa á Facebook, stundum er samfélagsmiðillinn ágætis afþreying, en um leið og vanlíðan fer að láta á sér kræla er tími til kominn að gera eitthvað annað.

Sjóndeildarhringurinn dregst saman

Gagnrýnendur samfélagsmiðla hafa lengi bent á að reikniforskrift Facebook, sem ákveður hvaða efni þú sérð, byggt á því sem þú smellir á, geti valdið því að sjóndeildarhringur þinn dragist saman. Í ljósi þess að þú sérð eingöngu efni sem þú þekkir, hefur áhuga á eða ert sammála getur þetta einangrað þig frá öðrum sjónarmiðum en þínum eigin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“