Pantaðir með búnaði sem mætti þörfum þeirra – „Við áttuðum okkur á því að þetta væri alveg geranlegt“ – Askja kostar útvarpsþátt þeirra en gaf þeim ekki „sérstakan díl“ segir Svali
Útvarpsmennirnir Sigvaldi Kaldalóns og Svavar Örn Svarvarsson, betur þekktir sem Svali og Svavar á K100, hafa fjárfest í nýjum bifreiðum. Báðir fengu þeir sér Mercedes-Benz jepplinga, beint upp úr kassanum, sem þeir fengu afhenta fyrir síðustu helgi.
Svali fékk sér Mercedes-Benz af gerðinni GLC og Svavar GLA en samkvæmt verðlista Öskju kosta slíkar bifreiðar á bilinu 6 til 10 milljónir króna. Svali segir í samtali við DV að hann sé alsæll með kaupin enda voru báðar bifreiðarnar pantaðar með þeim búnaði sem mætti þörfum þeirra.
„Ég vildi til að mynda fá aðeins stærri vél og betri græjur en Svavar var meira að hugsa um útlitið og fékk sér til dæmis aðrar felgur.“
Svali segir að nýir bílar séu almennt orðnir mun ódýrari en þeir voru áður. Hann segist lengi hafa dreymt um að kaupa sér nýjan bíl og þegar hann sá að hann ætti möguleika á að eignast slíkan ákvað hann að láta drauminn rætast.
„Þetta er kostar mig slatta en ég var búinn að segja að einn góðan veðurdag myndi ég fá mér almennilegan bíl.“
Svali segist vera hæstánægður með nýja bílinn sinn og eyddi hann stórum hluta helgarinnar í að prófa bílinn.
„Ég verð sennilega ekki á jörðinni næstu daga. Þetta er æðislegur bíll. Ég held að ég hafi keyrt yfir 500 kílómetra bara um helgina. Ég varð að máta græjuna.“
Askja er styrktaraðili útvarpsþáttar Svala og Svavars á útvarpsstöðinni K100. Svali segir það hafa spilað inn ákvörðun þeirra um bílakaup. Hann segir Öskju hins vegar ekki hafa gefið þeim neinn sérstakan samning.
„Við erum í frábæru samstarfi við þá. Þetta hefði ekki verið hægt ef þeir kostuðu ekki þáttinn en við fengum engan sérstakan díl. Við Svavar vorum báðir í bílahugleiðingum og þegar við áttuðum okkur á því að þetta væri alveg geranlegt lá beinast við eiga viðskipti við Öskju,“ segir Svali.
Á Facebook-síðu Öskju var birt mynd af félögunum með nýju bílunum. Þar segir að tilviljun réði því að skráningarnúmer á bíl Svala er skammstöfun á nafninu hans auk fæðingarárs.
(function(d, s, id) { var js, fjs = d.getElementsByTagName(s)[0]; if (d.getElementById(id)) return; js = d.createElement(s); js.id = id; js.src = „//connect.facebook.net/is_IS/sdk.js#xfbml=1&version=v2.3“; fjs.parentNode.insertBefore(js, fjs);}(document, ‘script’, ‘facebook-jssdk’));
Svali&Svavar útvarpsmenn á K100 með meiru, fengu afhentar Mercedes-Benz bifreiðar sínar í dag en Svali fékk sér GLC og…
Posted by Mercedes-Benz Ísland – Askja on 11. mars 2016