Kántrý drottningin Dolly Parton er ekki aðeins fræg fyrir sína undurfögru rödd og skarpan húmor heldur einnig útlit sitt. Ekki síst hinar flennistóru hárkollur sem hún hefur borið í áratugi. Það kom því mörgum aðdáendum á óvart að sjá mynd af henni án hárkollu.
„Hugsaðu um það: Hefur þú einhvern tímann séð hana án hárkollu?“ er spurt í grein í tímaritinu Woman´s World. En Dolly hefur verið í viðtölum til að kynna bókina sína Dolly Parton, Songteller: My Life in Lyrics.
Í nýlegu viðtali við tímaritið Elle sagði Dolly að hún væri ekki alltaf með hárkollu heima hjá sér en myndi þó alltaf blása það upp. „Ég vill alltaf hafa áberandi hár. Þegar ég er heima hjá mér set ég litlu teygjurnar í mig en ég set alltaf á mig farða og geri hárið eins sætt og ég get,“ sagði hún. „Hárkollur eru bara svo þægilegar. Ég hef svo mikið að gera og ég hef svo marga valmöguleika. Ég á aldrei „slæman hárdag“ og það er gott.“
Dolly ræddi einnig um hárkollurnar sínar í viðtali við ET. Þar sagðist hún eiga alla vega 365 hárkollur, eina fyrir hvern dag ársins. Hún sagði líka að eiginmanni sínum, Carl Thomas Dean, væri misvel við þær. Sjálf sagði hún að hárkollurnar hennar væru allar stórar og allar kynþokkafullar.