Hr. Eydís er með nýja ´80s ábreiðu í dag enda síðasti virki dagurinn fyrir páskafrí og um hálfgerðan föstudag að ræða.
Að þessu sinni er ábreiðan íslensk, en lagið hafa Hr. Eydís tekið á bókstaflega öllum tónleikapartýjunum (Alvöru ´80s partý) sem sveitin hefur haldið og segjast aldeilis ekki að fara að hætta því..
Lagið er Draumaprinsinn sem Raghildur Gísladóttir söng árið 1982 og er af plötunni Smámyndir með Magnúsi Eiríkssyni en Magnús samdi einmitt lagið. Lagið var einnig leikið í kvikmyndinni Okkar á milli og varð auðvitað eins og allir þekkja, alveg risastórt. Þegar lagið kom út þótti mörgum ruglingslegt að Ragga Gísla söng bæði um Benjamín og Benóný í laginu, en það er eflaust stór partur af snilldinni í textanum!
Erna Hrönn syngur lagið af sinni alkunnu snilld og grípur meir að segja í óperuröddina í lokin!
„Ég var á þessum tíma í Vesturbæjarskóla og Ragga Gísla var tónmenntakennarinn minn. Ég man hvað við öll í bekknum vorum stolt af henni og að hún væri kennarinn okkar…..já þetta var mjööög stórt“ segir Örlygur Smári og brosir að ljúfri minningunni.
Instagram: eydisband
Facebook: Hr. Eydís (hreydisband)
TikTok: eydisband