Það eru þónokkrar breytingar hjá enska landsliðinu í dag sem mætir því belgískla í leik um bronsið á HM í Rússlandi.
Phil Jones, Ruben Loftus-Cheek, Eric Dier, Danny Rose og Fabien Delp koma allir inn í liðið hjá þeim ensku.
Hjá Belgum fær Yuri Tielemand að byrja og Thomas Meunier kemur inn eftir leikbann.
Hér má sjá liðin.
Belgía: Courtois, Alderweireld, Kompany, Vertonghen, Meunier, Witsel, De Bruyne, Tielemans, Chadli, Lukaku, Hazard.
England: Pickford, Jones, Stones, Maguire, Trippier, Dier, Delph, Rose, Loftus-Cheek, Sterling, Kane.