Tottenham ætlar sér að reyna að kaupa Eberechi Eze kantmann Crystal Palace í sumar en hann er með klásúlu í samningi sínum.
Talksport segir frá þessu en Eze er 25 ára gamall enskur kantmaður.
Eze er í enska landsliðshópnum sem er á Evrópumótinu í Þýskalandi núna en hægt er að fá hann á 60 milljónir punda í sumar.
Tottenham vill styrkja sóknarleik sinn og er Eze nafn á blaði sem félagið horfir til.
Eze hefur verið hjá Palace í fjögur ár en hann kom til félagsins frá QPR og hefur spilað vel.