Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba hefur átt samtal við Manchester United um að framlengja samning hans.
Pogba vill fara frá Manchester United, það þarf að kafa djúpt í vasa ef hann á að halda áfram hjá United.
Pogba vildi fara til Real Madrid í sumar en Diario Madridista, segir að kröfur Raiola fyrir Pogba séu svakalegar.
Sagt er að Raiola heimti 600 þúsund pund á viku fyrir Pogba, það eru 92 milljónir íslenskra króna.
Pogba yrði þar með í sérflokki yfir laun á Englandi og yrði einn launahæsti leikmaður í heimi.