Það eru talsverðar áhyggjur í herbúðum Cardiff en talið er að Emiliano Sala framherji félagsins sé í flugvél sem er nú týnd. BBC fjallar um málið.
Vélin var á leið fá Nantes í Frakklandi til Cardiff. Cardiff var að kaupa Sala frá Nantes en hann var í Frakklandi að kveðja gamla vini.
Vélin týndist við Casquets á leið sinni en það var um klukkan 20:30 í gærkvöldi, flugumferðarstjórar tóku þá eftir því að vélin hvarf skyndilega af radar sem þeir fylgjast með.
Atvikið átti sér ekki stöð í lögsögu Bretlands en lögreglan og önnur yfirvöld þar í landi, sendu samt þyrlu á svæðið.
Aðstæður á leitarstað voru slæmar og fannst vélin ekki við fyrstu tilraun. Sagt er að veðrið hafi ekki verið mjög slæmt þegar vélin hvarf.
Um er að ræða The Piper Malibu flugvél sem leitað verður af í dag en Sala er dýrasti leikmaður í sögu Cardiff. Aron Einar Gunnarsson er í herbúðum félagsins.