Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, segir að blaðamenn á Englandi verði að sýna Jose Mourinho, stjóra Manchester United, meiri virðingu.
Sarri og Mourinho mætast í fyrsta skiptið á morgun er Chelsea tekur á móti United á Stamford Bridge.
Framtíð Mourinho hefur mikið verið í umræðunni en Sarri efast ekki um hversu góður þjálfari Portúgalinn er.
,,Við erum að tala um stjóra sem hefur unnið allt á ferlinum,“ sagði Sarri við fjölmiðla.
,,Hann hefur unnið alls staðar þar sem hann hefur verið. Ég verð að sýna honum virðingu en þið verðið að gera það líka.“
,,Hann er mjög góður þjálfari og mjög góður stjóri. Hann er einn sá allra besti í heiminum.“