KA 0 – 1 Grindavík
0-1 Gunnar Þorsteinsson (57′)
KA tók á móti Grindavík í undanúrslitum Lengjubikarsins í dag en leiknum lauk með 1-0 sigri gestanna.
Það var Gunnar Þorsteinnson sem skoraði eina mark leiksins á 57. mínútu en leikurinn var afar bragðdaufur og var fátt um fína drætti á Akureyri í dag.
Grindavík er því komið á fram í úrslitaleikinn þar sem liðið mætir Valsmönnum þann 5. apríl næstkomandi.