Miðjumaðurinn efnilegi Andri Fannar Baldursson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Breiðablik.
Andri Fannar er fæddur árið 2002 og er uppalinn Bliki.
Hann er fastamaður í yngri landsliðum Íslands og hefur verið að spila ári upp fyrir sig.
Hann hefur þegar spilað sex landsleiki fyrir U17.
Frá áramótum hefur Andri verið að æfa með meistaraflokki Breiðabliks og staðið sig vel.