Veigar Páll Gunnarsson mun spila með KFG í 3. deildinni næsta sumar en það er fótbolti.net sem greinir frá þessu.
Hann gekk til liðs við FH frá Stjörnunni á síðasta ári en fékk lítið að spila með Hafnfirðingum og var að lokum lánaður til Víkings R.
Veigar ákvað svo að hætta eftir tímabilið en hann var ráðinn inn í þjálfarateymi Stjörnunnar eftir að hann hætti að spila fótbolta.
Hann hefur svo æft með KFG á undirbúningstímabilinu og hefur nú ákveðið að taka slaginn með liðinu í 3. deildinni í sumar.