Ótrúleg úrslit áttu sér stað í Lengjubikar karla í dag þegar Magni sem leikur í 1. deild mætti KR.
Magni var að komast í fyrsta sinn i sögu sinni upp í 1. deildina síðasta sumar.
Leiknum í Lengjubikarnum í dag lauk með markalausu jafntefli, frábær úrslit hjá Magna.
ÍBV vann svo 0-1 sigur á Fram en leikið var í Egilshöllinni.
Það var Ágúst Leó Björnsson sem lék með Aftureldingu síðasta sumar sem skoraði eina mark leiksins.