KA tók á móti Leikni F. í Kjarnafæðismótinu í kvöld en leiknum lauk með 3-0 sigri heimamanna.
Frosti Brynjólfsson kom KA yfir strax á 13. mínútu og Elfar Árni Aðalsteinsson tvöfaldaði forystu heimamanna á 28. mínútu.
Steinþór Freyr Þorsteinsson skoraði svo þriðja mark leiksins á 39. mínútu og staðan því 3-0 í hálfleik.
Heimamenn gerðu margar skiptingar í síðari hálfleik en hvorugu liðinu tókst að skora og niðurstaðan því 3-0 fyrir KA.
KA er á toppi A-deildarinnar með 13 stig, þremur stigum meira en Þórsarar sem eiga leik til góða.