KR tók á móti Fylki í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í kvöld en leiknum lauk með 1-0 sigri Fylkis.
Andre Bjerregaard fékk að líta beint rautt spjald á 27. mínútu og KR því einum færri það sem eftir lifði leiks.
Það var svo Orri Sveinn Stefnánsson sem skoraði eina mark leiksins á 77. mínútu og lokatölur því 1-0 fyrir Fylki.
Fjölnir og Fylkir munu því mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins en Fjölnir vann 5-0 sigur á Leiknir R. fyrr í kvöld.