KA og Magni mættust í Kjarnafæðismótinu í dag en leiknum lauk með 5-1 sigri KA.
Daníel Hafsteinsson kom KA yfir á 4. mínútu og Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði svo þrennu með stuttu millibili og staðan því 4-0 í hálfleik.
Elfar Árni bætti svo við sínu fjórða marki á 75. mínútu áður en Kristinn Þór Rósbergsson klóraði í bakkann fyrir Magna á 87. mínútu en lengra komust þeir ekki.
Lokatölur því 5-1 fyrir KA sem byrjar mótið af miklum krafti.