ÍBV og Rut Kristjánsdóttir hafa endurnýjað samning sín á milli um eitt ár.
,,ÍBV fagnar þessari ákvörðun Rutar en hún var ein af bestu leikmönnum liðsins í sumar, átti sennilega sitt besta ár á ferlinum,“ segir í yfirlýsingu ÍBV.
,,Rut kóronaði frábært tímabil sitt í bikarúrslitaleiknum þegar ÍBV sigraði Stjörnuna 3-2 í framlengdum úrslitaleik.“
Rut er öflugur leikmaður sem áður lék með Fylki í Pepsi deildinni og var þar öflugur leikmaður.