Valur tók á móti ÍR í A-riðli Reykjavíkurmótsins í dag en leiknum lauk með 2-0 sigri Vals.
Eiður Aron Sigurbjörnsson kom Valsmönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks og staðan því 1-0 í leikhléi.
Dion Acoff innsiglaði svo sigur Valsmanna á 68. mínútu og lokatölur því 2-0 fyrir Valsmenn.
Valur er í þriðja sæti A-riðils með 6 stig en ÍR er á botninum með 1 stig.