Grétar Sigfinnur Sigurðarson hefur yfirgefið Þrótt Reykjavík en það er mbl.is sem greinir frá þessu.
Hann hefur hins vegar ekki lagt skóna á hilluna en vildi ekki gefa upp ástæðuna fyrir því af hverju hann hefur yfirgefið Þróttara.
Hann samdi við liðið í fyrra og kom til félagsins frá Stjörnunni en þar áður hafði hann spilað með KR í efstu deild.
Ekki er ennþá ljóst hvað tekur við hjá leikmanninum en hann hefur verið orðaður við Fylki og Keflavík.