Víkingur Reykjavík tók á móti ÍBV í Lengjubikarnum í dag en leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna.
Shahab Tabar kom ÍBV yfir strax á 14. mínútu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Breki Ómarsson tvöfaldaði svo forystu ÍBV á 76. mínútu með marki út vítaspyrnu en Rick Ten Voorde minnkaði muninn fyrir heimamenn, tveimur mínútum síðar.
Lokatölur því 2-1 fyrir ÍBV sem lýkur keppni í þriðja sæti riðils 1 en Víkigur R. endar á botninum með 3 stig.