Þrír leikir fóru fram í Lengjubikarnum í riðli 3 í dag.
Víkingur Ó. gerði sér lítið fyrir og vann Keflavík, 1-0 þar sem að Gonzalo Leon skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik.
Haukar og Fjölnir gerðu 1-1 jafntefli þar sem að Gylfi Steinn Guðmundsson jafnaði metin fyrir Hauka í síðari hálfleik.
Þá vann Stjarnan 2-0 sigur á Leikni Reykjavík en úrslit og markaskorara má sjá hér fyrir neðan.
Víkingur Ó. 1 – 0 Keflavík
1-0 Gonzalo Zamorano Leon (79′)
Haukar 1 – 1 Fjölnir
0-1 Anton Freyr Ársælsson (18′)
1-1 Gylfi Steinn Guðmundsson (65′)
Leiknir R. 0 – 2 Stjarnan
0-1 Hilmar Árni Halldórsson (12′)
0-2 Hilmar Árni Halldórsson (47′)