Magni tók á móti Þrótti R. í Lengjubikarnum í kvöld en leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna.
Gunnar Örvar Stefánsson kom Magna yfir strax á 12. mínútu áður en Ólafur Hrannar Kristjánsson jafnaði metin fyrir gestina á 65. mínútu.
Þorgeir Ingvarsson og Bergvin Jóhannsson skoruðu svo sitthvort markið fyrir Magna á lokamínútunum og niðurstaðan því 3-1 fyrir heimamenn.
Magni er í fjórða sæti riðils 2 með 4 stig á með Þróttur R. er í fimmta sætinu með 3 stig.