Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals ber leikmenn Völsungs og Víkings þungum sökum í viðtal í Návíginu á Fótbolta.net í gær. Þau ummæli vöktu mikla athygli.
Ólafur er að ræða um sumarið 2013 þegar Víkingur vann 16-0 sigur á Völsungi í næst síðustu umferð. Ólafur var að þjálfa Hauka en liðið fór ekki upp vegna markatölu og þá út af þessum leik.
,,Það hefur enginn blaðamaður þorað að fara í þetta vegna þess að það hentar kannski ekki. Ég vil meina að einhverjir hafi verið búnir að semja um úrslitin í þessum leik. Tveir leikmenn Völsungs (Guðmundur Óli og Hrannar Björn Steingrímssynir) eru reknir út af í fyrri hálfleik. Annar fær gult spjald fyrir eitthvað brot, labbar í burtu og fyrst að hann fékk ekki rautt þá sneri hann sér við og sagði dómarnum að þegja eða halda kjafti. Hvað hélt hann að myndi gerast þá? Þetta var ekkert eðlilegt. Við fórum reyndar síðan og unnum Völsung 7-0 í lokaleik en Víkingur fór upp á markatölu,“ sagði Ólafur í viðtalinu á Fótbolta.net.
Ólafur hafði sagt þessi sömu orð í viðtali við 433.is síðasta haust. „Hauka-tímabilið var mjög fínn tími, það er náttúrlega rannsóknarefni fyrir blaðamenn, sem þeir þorðu ekki að fara í frekar en annað, af hverju Haukar fóru ekki upp í efstu deild í fótbolta. Það var allt ólöglegt við þetta sem hægt var, blaðamenn þorðu ekki að fara í það mál,“ sagði Ólafur um málið í samtali við 433.is.
,,Ef Ólafur biðst ekki afsökunar kemur til greina að kæra hann fyrir meiðyrði,“ sagði Haraldur Haraldsson framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Víkings við Akraborgina í dag um ummæli Ólafs Jóhannessonar.
Víkingar hafa vísað málinu til KSÍ og krefjast þess að Ólafur biðjist afsökunnar.