Eyjapeyjinn Eyþór Orri Ómarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍBV.
Eyþór er 14 ára gamall framherji sem á að baki tvo leiki með U-16 ára landsliði Íslands.
Eyþór hefur æft með meistaraflokki karla á þessu undirbúningstímabili ásamt því að taka þátt í æfingaleikjum með liðinu.
,,Virkilega efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér. Við óskum honum og félaginu innilega til hamingju,“ segir í yfirlýsingu ÍBV: