Stjarnan vann 3-1 sigur á Haukum í Lengjubikar karla í dag en leikið var í Kórnum.
Baldur Sigurðsosn kom Stjörnunni á blað með marki á 16 mínútu leiksins.
Það var svo Haukur Ásberg Hilmarsson sem jafnaði fyrir Hauka níu mínútum síðar.
Hilmar Árni Halldórsson kom Stjörnunni aftur yfir eftir rúman hálftíma.
Það var svo Sölvi Snær Fodilsson sem er fæddur árið 2001 sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Stjörnunni og tryggði 3-1 sigur.
Sölvi Snær skoraði fyrsta markið sitt í meistaraflokki í 3-1 sigri á Haukum. Vel gert! #InnMedBoltann pic.twitter.com/qs6kQIsiUH
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) February 17, 2018