Agla María Albertsdóttir var í stuði þegar Breiðablik tók á móti FH í Lengjubikar kvenna í dag.
Ein af stærri félagaskiptum vetrarins voru skipti Öglu frá Stjörnunni yfir í uppeldisfélag sitt.
Hún skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Blika í dag en hitt mark Blika skoraði Alexandra Jóhannsdóttir.
Mark FH skoraði Diljá Ýr Zomers en hún lagaði stöðuna í 3-1.
Um var að ræða fyrsta leik Blika en FH hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.