Valur vann 2-0 sigur á Fram í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í kvöld, leikið var í Egilshöll.
Valur hafði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum en vann góðan sigur í kvöld.
Ólafur Karl Finsen og Andri Adolphsson skoruðu mörk Vals í sigrinum.
Fram er að byggja upp nýtt lið en óvíssa hefur verið í kringum félagið eftir læti í stjórn félagsins.