,,Þetta var alveg frábært,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson hetja ÍBV eftir sigur á KA.
Gunnar skoraði tvö af mörkum ÍBV í 3-0 sigri þegar liðið tryggði sér sæti í deildinni að ári.
,,Við hefðum getað losað okkur úr þessari klípu fyrir löngu, við Eyjamenn erum í því að halda þessari spennu.“
,,Ég vissi að við myndum klára þetta.“
Viðtalið er í heild hér að ofan og neðan.