,,Það var frábært að vinna hérna,“ sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 1-2 sigur á Breiðabliki í kvöld.
FH-ingar áttu sigurinn skilið en Kristján Flóki Finnbogason skoraði bæði mörk liðsins.
,,Þetta er erfiður útivöllur, Blikar hafa verið að spilla vel. Mér fannst við fyrstu 30-35 flottir. Vð vorum klaufar að ná ekki inn öðru marki.“
,,Gísli sem er einn besti skotmaður í deildinni skoraði frábært mark, við svöruðum því.“
Viðtalið er í heild hér að ofan og neðan.