Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, var virkilega sáttur með sína menn í kvöld í 3-0 sigri á Víkingi Reykjavík.
,,Mér fannst þessi sigur verðskuldaður. Liðsheildin frá fyrstu mínútu var frábær,“ sagði Willum.
,,Einbeitingin og vinnuframlag liðsins var til fyrirmyndar og það er gott að geta startað deildinni.“
,,Þessi deild er þannig að við þurfum að einbeita okkur að einum leik í einu. Það eru öll lið mjög öflug.“
,,Bæði Bjerregaard og Tobias unnu vel saman og léttu svolítið af miðjunni svo þeir áttu í vandræðum með uppspilið.“