,,Við erum í basli með að vinna lið sem heita Víkingur,“ sagði Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH eftir 1-1 jafntefli við Víking Götu í Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Um var að ræða fyrri leik liðanna í undankeppni Meistaradeildarinnar en síðari leikurinn er í Færeyjum.
,,Við þurfum að leggjast yfir það hvernig við vinnum leikinn í næsta leik.“
,,Við erum ekki ánægðir með 1-1 jafntefli á heimavelli gegn þessu liði.“
Viðtalið er í heild hér að ofan og neðan.