Andri Rúnar Bjarnason, leikmaður Grindavíkur, var að vonum ánægður í kvöld eftir 1-0 sigur á KR á KR-velli. Andri skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.
,,Það er frekar kalt á toppnum! Þetta var geggjaður sigur, draumi líkast bara,“ sagði Andri Rúnar.
,,Við vildum alveg að þeir væru með boltann því við vissum hverjir væru þeirra hættulegustu leikmenn og við lokuðum vel á þá.“
,,Þetta var víti. Ég tek hann á kassann, toucha hann inn fyrir og hann hangir í mér. Ég kemst ekkert af stað.“