,,Ég er rosalega ánægður með þetta stig,“ sagði Óli Stefán Flóventsson þjálfari Grindavíkur eftir markalaust jafntefli gegn Breiðabliki í kvöld.
Grindavík varðist vel en fékk þó færi til að stela stigunum þremur.
,,Við þurftum að kafa djúpt og verja þetta stig sem við byrjuðum með.“
,,Við héldum boltanum illa og þá þurfum við að halda aga, við gerðum það svo vel í dag.“
Viðtalið er í heild hér að ofan og neðan.