,,Núna erum við í áttunni, við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari Víkings eftir 2-2 jafntefli við FH í kvöld.
Víkingar eru taplausir eftir að Logi tók við liðinu og hafa safnað átta stigum í deildinni.
,,Við höfum sýnt það af okkur áður að við getum komið hressir til baka þrátt fyrir að lenda undir og við gerðum það aftur í dag.“
Ívar Örn Jónsson jafnaði leikinn 2-2 með geggjuðu marki með hægri fæti.
,,Hann hefur meira notað hann til að standa í hann, þetta kom skemmtilega á óvart.