Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður ÍBV, var mjög svekktur í kvöld eftir 5-0 tap gegn Stjörnunni í Garðabænum.
,,Þetta var ekki það sem við lögðum upp með en svona gerist stundum og við sýndum ekki nógu mikinn karakter,“ sagði Gunnar Heiðar.
,,Þó við liggjum undir fyrstu mínúturnar þá þurfum við að geta snúið við og gírað okkur saman en það gekk ekki í dag og ekki heldur á 89. mínútu og það er mjög sad finnst mér.“
,,Þeir fá þetta víti þarna og annan leikinn í röð gerist eitthvað svona og við náum aldrei að komast upp úr þessu.“