Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, var sáttur með að fá þrjú stig í Vesturbænum í kvöld en liðið vann 2-1 sigur á ÍA.
,,Frá mér séð þá kýldi Stefán hann og svo skella þeir saman en svona er fótboltinn,“ sagði Willum um vítaspyrnu ÍA undir lokin.
,,Við sýndum styrk og héldum út. Auðvitað er þetta þannig að þegar þú ert í 2-0 og það eru færi og við erum að klikka í leikstöðum þar sem við getum skapað dauðafæri og klárað. Þetta þriðja klassíska mark, við hefðum klárað leikinn á því.“
,,Það hefði verið hræðilegt að fá jafntefli því við lögðum mikið í leikinn og spiluðum vel. Við vorum agaðir og héldum skipulagi.“
,,Ég á ekki von á því að það gerist mikið fyrir lokun,“ bætti Willum við en félagaskiptaglugginn er að loka hér á landi.