Milos Milojevic, þjálfari Víkings R, var svekktur í Vestmannaeyjum í kvöld eftir 1-0 tap gegn ÍBV.
,,Þeir skoruðu mark úr sínu fyrsta færi og ég man ekki betur en að það hafi verið eina færið,“ sagði Milos.
,,Það er staðreynd að við vorum miklu betri í spilinu í seinni hálfleik en við sköpuðum ekki neitt þar sem það var erfitt að koma að lokasendingunni því þeir voru þéttir.“
,,0-0 veður, rok en við náðum ekki að opna þá en fengum tvö þrjú dauðafæri.“