Dion Acoff, leikmaður Vals, var ánægður í kvöld eftir 2-0 sigur á Víkingi Ólafsvík en vængmaðurinn komst á blað í fyrsta deildarleik.
,,Ég er alltaf ánægður með að ná marki í fyrsta leik, ég er mjög ánægður,“ sagði Dion.
,,Þetta var erfitt í fyrri hálfleik, þeir eru með gott lið en það var ánægjulegt að ná að skora.“
,,Við fengum nóg af færum en svona er fótboltinn stundum. Við fengum stigin þrjú sem skiptir öllu máli.“