,,KR-ingar áttu þetta skilið,“ sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir tap gegn KR í undanúrslitum Lengjubikarsins í dag.
Tobias Thomsen var hetja KR í 2-1 sigri en mark hans kom eftir sex mínútur í síðari hálfleik.
,,Mér fannst þeir sterkari í þessum leik, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við réðum illa við pressuna sem þeir settu á okkur.“
,,Heilt yfir var þetta sanngjarn sigur, við náðum litlu floti á boltann. Boltinn gekk ekki nógu vel innan liðsins.“
,,Það vantaði hreyfingu og að menn væru að tala saman, fara í þessar færslur sem við erum góðir í.“
Viðtalið við Heimi er í heild hér að ofan og neðan.