„Þetta er bara mjög góð tilfining og ég hlakka til að klæðast treyjunni og byrja að spila aftur,“ sagði Kristinn Freyr Sigurðsson, nýjasti leikmaður Vals á blaðamannafundi á Hlíðarenda í dag.
Kristinn Freyr er mættur aftur á Hlíðarenda eftir ársdvöl hjá Sundsvall í Svíþjóð en hann var algjör lykilmaður í liðinu, áður en hann fór út og var m.a valinn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar tímabilið 2016.
„Þetta er ákvörðun sem við fjölskyldan tókum í sameiningu, þrátt fyrir stuttan tíma úti þá var þetta rétti tímapunkturinn til þess að koma heim aftur. Þetta var mjög lærdómsríkt ár þarna úti í Svíþjóð, þetta var erfitt og það var nýtt fyrir mér að spila í botnbaráttu og ég lærði ýmislegt um sjálfan mig og ég tel mig hafa bætt mig sem bæði leikmaður og persóna.“
„Ég spilaði með Val í fimm ár áður en ég fór út og hér þekki ég alla. Það eru spennandi tímar framundan hérna og þess vegna skrifa ég undir fjögurra ára samning. FH er að sjálfsögðu stórt félag á Íslandi og Óli Kristjáns er frábær þjálfari og þeir ætla sér örugglega stóra hluti, líkt og Valur,“ sagði hann m.a.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan og neðan.