Willum Þór Þórsson, fyrrum þjálfari KR er oddviti Framsóknarmanna í suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.
Willum hætti með KR í lok tímabilsins til þess að snúa sér að pólitíkinni og ætlar sér að ná þingsæti í komandi kosningum en kosið verður á laugardaginn næsta.
Hann gerði ágætis hluti með KR í sumar en liðið hafnaði í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar með 31 stig.
Willum þekkir vel til á Alþingi eftir að hafa starfað þar á árunum 2013-2016.
Hann birti nýtt kosningamyndband í dag sem hefur vakið athygli en myndbandið má sjá hér fyrir neðan.