KH komst upp í 3. deild karla í gær með því að leggja Kórdrengi af velli samanlagt 2-1.
Seinni leikurinn fór fram á Hlíðarenda í gær og endaði hann með 1-1 jafntefli en mikið för var í leiknum.
Kórdrengir voru ósáttir með dómara leiksins og vildu menn að hann hefði dæmt af þeim löglegt mark.
Meira:
Davíð Smári: Markið sem var dæmt af okkur réð úrslitum
Þá vildu Kórdrengir fá vítaspyrnu þegar Sigurður Gílsi Snorrason var togaður niður í teignum.
„Við skoruðum mark sem var dæmt af okkur vegna einhvers sem ég veit ekki og það er til á myndbandi og það verður gaman að sjá það aftur. Svo áttum við líka að fá víti en það sem skilur liðin að hérna er markið sem var dæmt af okkur,“ sagði Davíð Smári Helenarson, þjálfari Kórdrengja við 433.is í gær.
Myndband af þessum atvikumm og einu frábæru færi liðsins má sjá hér að neðan en Magnús Valur Böðvarsson sem er með passionleague á Snapchat sendi okkur þessi myndbönd.
Myndband af þessu er hér að ofan og neðan.