Birkir Bjarnason, leikmaður Íslands, átti fínasta leik í kvöld er strákarnir okkar nældu í þrjú stig gegn Úkraínu í undankeppni HM.
,,Við erum ennþá með bullandi séns. Jafn mörg stig og Króatar og við vorum heppnir að þeir hafi tapað,“ sagði Birkir.
,,Mér fannst fyrri hálfleikur mjög fínn líka. Við héldum þeim mjög vel niðri og ég fékk mjög stórt færi en við töluðum bara saman og ætluðum að halda þessu áfram.“
,,Það sást hversu mikið fyrsta markið gaf liðinu og við héldum áfram þar til dómarinn blés af.“