Milos Milojevic, þjálfari Breiðabliks, gat verið ánægður með sína menn í dag eftir 2-0 sigur á ÍA í Pepsi-deild karla.
,,Leikurinn var kaflaskiptur. Við vorum með control meiri hluta leiksins en það kom 15-20 mínútna kafli þar sem þeir voru meira með boltann en ég vildi,“ sagði Milos.
,,Við sköpuðum fullt af færum og þegar það gerist þá eru hreyfingar góðar og menn eru að hlaupa í rétt svæði.“
,,Ég kvarta ekki. 2-0 sigur og við héldum hreinu og þetta var verðskuldaður sigur.“
Nánar er rætt við Milos hér fyrir ofan og neðan.