Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, var ánægður með spilamennsku síns liðs í kvöld þrátt fyrir 1-0 tap gegn FH í Eyjum.
,,Við spiluðum leikinn mjög vel eins og Íslandsmeistarar bara og sköpuðum okkur færi,“ sagði Kristján.
,,Við höfðum í raun aldrei áhyggjur af andstæðingnum allan leikinn. Við spiluðum vel varnarlega og nokkuð vel sóknarlega.“
,,Það á að vera önnur staða í hálfleik en 0-0 ég held að það sé öllum ljóst en það var ekki.“